Um Sláturhúsið á Hellu

Sláturhúsið Hellu
Suðurlandsvegi 8
850 Hellu
Aðalnúmer: 512 1100
Kennitala: 511001-2180
VSK Númer: 72555

Sagan

Hlutafélagið Sláturhúsið Hellu hf. var stofnað 10. nóvember 2001. Að stofnun félagsins stóðu tólf bændur úr Rangárvallasýslu, Árnessýslu og V-Skaftafellssýslu ásamt Guðmari Jóni Tómassyni, sláturhússtjóra á Hellu og Þorgils Torfa Jónssyni fyrrum markaðs- og framleiðslustjóra Þríhyrnings hf.

Upphaflega var tilgangur félagsins rekstur sláturhúsa og afurðasala, verslunarrekstur, inn- og útflutningur, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og annar skyldur atvinnurekstur. Búnaðarbankinn verðbréf undirritaði kaupsamning við Kjötumboðið hf. um kaup á eignum þess á Hellu og í Þykkvabæ fyrir hönd bænda. Um var að ræða pakkhús og stórgripasláturhús á Helllu og sauðfjársláturhús í Þykkvabæ.

Til að byrja með voru störf fyrir sex manns og fyrstu árin eftir stofnun þess var slátrað nautgripum, hrossum og svínum.

Árið 2011 var hafin bygging nýrrar aðstöðu fyrir kjötvinnslu fyrirtækins og var hún tekin í notkun fljótlega eftir áramótin 2012.

Vorið 2014 keypti Kaupfélag Skagfirðinga 60 prósenta hlut í Sláturhúsinu Hellu hf. en hin 40 prósentin voru í eigu bænda á starfssvæði fyrirtækisins og kjötvinnslna.

Árið 2021 var Kaupfélag Skagfirðinga orðinn 100% eigandi Sláturhússins á Hellu.

Starfsfólk

Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 16 einstaklingar allt árið. Megin áhersla er á slátrun nautgripa og hrossa, auk úrbeiningu og pökkun á heimtöku.

Stjórn félagsins

Sigurjón Rúnar Rafnsson stjórnarformaður

Ágúst Andrésson meðstjórnandi

Óli Viðar Andrésson meðstjórnandi

Gæðastefna Sláturhúss Hellu hf.

Sláturhúsið Hellu hf. reynir eftir fremsta megni að uppfylla væntingar og þarfir viðskiptavina varðandi þjónustu og vörur.

Með hreinlæti og góðum starfsháttum eru gæði vörunnar tryggð í gegnum framleiðsluferlið allt frá því gripnum er slátrað, hann unninn og þar til afurðin er komin á markað.

Að Sláturhúsið Hellu hf. eigi gott og skilvirkt samstarf við alla hagsmunaaðila.

Starfsemi Sláturhúss Hellu hf. er undir eftirliti MAST ásamt daglegu eftirliti dýralæknis. Gæðahandbók fyrirtækisins er byggð upp á HACCP-áhættugreiningu.

Staðsetning

Við erum staðsett að Suðurlandsvegi 8, 850 Hellu.

SLH